Það sem við byrjuðum að þreifa okkur áfram með fyrir rúmum 15 árum er nú orðin algeng lausn og æ fleiri hugsa sér til hreyfings í þeirri viðleitni að ná niður kyndikostnaði.
Hér fyrir neðan má sjá einfalda grunnmynd af aðferð sem er sérstaklega hugsuð fyrir þá sem skortir gott neysluvatn.
![Vatns- og varmadaelukerfi](https://i1.wp.com/alvarr.is.web1.vortex.is/wp-content/uploads/2017/03/vatns-varmadaelukerfi.jpg?resize=600%2C620)
Við hjálpum til við alla þætti verkefna af þessu tagi, þar með talið:
- Undirbúningsvinnu og hagkvæmniathuganir.
- Staðarval borholu.
- Boranir og mælingar á vatnsmagni og efnainnihaldi.
- Hönnun og smíði varmadælu – eða innflutning, eftir atvikum.
- Aðstoð við tengingar og gangsetningu.
Hafið samband og ræðum lausnir.